White noise hljóðtæki sem getur bætt svefn, aukið einbeitingu og dregið úr kvíða.
White noise mini er lítið og nett white noise tæki sem auðvelt er að festa á vagn, bílstól eða á vöggu.
White noise eru hljóð eða tónar sem innihalda allar hljóðtíðnir spilaðar með sama styrkleika – stundum kallað breiðbandssuð. Rannsóknir hafa sýnt fram á að það að sofa við hvítan hávaða eða white noise hljóð í bakgrunni getur hjálpar okkur að sofna hraðar, dregið úr kvíða og gefið betri nætursvefn alla nóttina, einnig hafa þessar hljóðbylgjur sýnt fram á að draga úr einkennum athyglisbrests (ADHD).
Nýfædd börn þekkja þessi hljóð vel, enda hljóðbylgjur sem þau heyra í móðurkviði. Þessi hljóð geta því róað lítil hjörtu, dregið úr gráti, hjálpað þeim að sofna og sofa dýpra.
Þessi hljóð dempa jafnframt önnur utanaðkomandi hljóð og vernda því barnið frá því að bregða eða vakna við önnur umhverfishljóð.
Um tækið
- 10 mismunandi hljóð, þar á meðal white noise, náttúruhljóð, hjartsláttur og vögguvísur
- Tækið getur spilað í allt að 23 klst. eftir fulla hleðslu. Þrjár mismunandi tímastillingar: 15 mín (grænt ljós), 30 mín (blátt ljós) og 60 mín (rautt ljós). Á tækinu er einnig auto stilling (hvítt ljós) þar sem tækið slekkur á sér eftir 15 mínútur en kveikir aftur á sér ef það nemur hljóð í 15 sekúndur, t.d. barnagrát. Tækið slekkur sjálfkrafa á sér eftir að tímastilling endar. Ef ekkert ljós er kveikt en tækið í gangi, spilar tækið þar til slökkt er á því.
- Stillanlegur hljóðstyrkur.
- USB hleðslusnúra fylgir og einnig band til að hengja tækið t.d. á vöggu, vagn eða annað.
- Falleg hönnun.





