White noise eru hljóð eða tónar sem innihalda allar hljóðtíðnir spilaðar með sama styrkleika – stundum kallað breiðbandssuð. Rannsóknir hafa sýnt fram á að það að sofa við hvítan hávaða eða white noise hljóð í bakgrunni getur hjálpar okkur að sofna hraðar, dregið úr kvíða og gefið betri nætursvefn alla nóttina, einnig hafa þessar hljóðbylgjur sýnt fram á að draga úr einkennum athyglisbrests (ADHD) og hafa góð áhrif á börn.
Nýfædd börn þekkja þessi hljóð vel, enda hljóðbylgjur sem þau heyra í móðurkviði. Þessi hljóð geta því róað lítil hjörtu, dregið úr gráti, hjálpað þeim að sofna og sofa dýpra.
Þessi hljóð dempa jafnframt önnur utanaðkomandi hljóð og vernda því barnið frá því að bregða eða vakna við önnur umhverfishljóð.
White Noise kanínan gefur ekki aðeins frá sér róandi white noise hljóðbylgjur, heldur er kanínan líka með stór og eftirsóknarverð augu sem stara á hvíthnoðrungana og eyrun lýsa í mörgum litum. Nýburar sjá ca 30 cm frá sér og taka helst eftir útlínum og lita andstæðum (t.d. svart/hvítt) ásamt því að sjá breytingar í lýsingum og kemur kanínan hér sterk inn.
Um tækið:
– Ferða white noise tæki sem auðvelt er að hengja á vagn, vöggu eða annað.
– Innbyggt 1200 mAh endurhlaðanlegt batterí sem endist lengi og er öryggisprófað.
– 3 hlýjar næturstillingar og 5 litastillingar í eyrum. Þæginlegt ljós þegar verið er að gefa á nóttinni. Einnig hægt að hafa öll ljós slökkt.
– 16 mismunandi hljóðstillingar sem róa barnið, m.a. white noise hljóð, vögguvísur, hjartsláttur og önnur náttúruhljóð.
– Stillanlegur hljóðstyrkur.
– Þrjár mismunandi tímastillingar ásamt minnisvirkni. Tækið man síðustu stillingu sem var notuð. Tækið slekkur sjálfkrafa á sér eftir að tímastilling endar.
– Einnig er hægt að láta tækið ganga þar til slökkt er á því.
– USB-C snúra fylgir