White noise hljóðtæki með róandi náttljósum sem getur bætt svefn, aukið einbeitingu og dregið úr kvíða.
White noise eru hljóð eða tónar sem innihalda allar hljóðtíðnir spilaðar með sama styrkleika – stundum kallað breiðbandssuð. Rannsóknir hafa sýnt fram á að það að sofa við hvítan hávaða eða white noise hljóð í bakgrunni getur hjálpar okkur að sofna hraðar, dregið úr kvíða og gefið betri nætursvefn alla nóttina, einnig hafa þessar hljóðbylgjur sýnt fram á að draga úr einkennum athyglisbrests (ADHD).
Nýfædd börn þekkja þessi hljóð vel, enda hljóðbylgjur sem þau heyra í móðurkviði. Þessi hljóð geta því róað lítil hjörtu, dregið úr gráti, hjálpað þeim að sofna og sofa dýpra.
Þessi hljóð dempa jafnframt önnur utanaðkomandi hljóð og vernda því barnið frá því að bregða eða vakna við önnur umhverfishljóð.
Mörgum þykir hljóðin sem tækið gefur frá sér hjálpa sér við einbeitingu og því er þetta tæki mjög sniðugt fyrir fólk í námi.
Um tækið :
- 16 róandi hljóð, m.a. 6 mismunandi white noise hljóð og viftuhljóð, 6 náttúruhljóð ásamt fjórum öðrum róandi hljóðum.
- Litrík LED ljós með sleep aid tækni. Tvær mismunandi gerðir af hlýrri og dempaðri birtu, 5 mismunandi litir og einnig hægt að láta ljósið breyta sjálfkrafa á milli lita.
- Fimm mismunandi tímastillingar: 15, 30, 60, 90 og 120 mínútur, með hljóði og ljósi. Tækið slekkur sjálfkrafa á sér eftir að tímastilling endar. Stillanlegur hljóðstyrkur.
- USB innstunga og kló fylgir. Hægt er að setja tækið í samband við tölvur eða í vegg. Tækið þarf að vera í sambandi.
- Falleg hönnun.








