Algengar spurningar

Aldrei að vita nema að svarið við þinni spurningu sé að finna hér að neðan:

Við nýtum okkur þjónustu Íslandspósts (Póstsins) til að koma vörum til viðskiptavina okkar.  Fast verð er á sendingum á vörum frá vefverslun okkar til allra viðskiptavina og er verðið 995 kr.  Allar sendingar eru sendar með Póstinum sem pakkasendingar á það pósthús sem er næst heimilisfangi viðskiptavinar.    

Öll verð í vefverslun Lúxúr ehf. eru birt með virðisaukaskatti.

Öll verð í vefverslun Lúxúr ehf. eru birt í íslenskum krónum.

Þegar pöntun hefur verið staðfest með greiðslu er gengið frá vörupöntuninni hjá okkur, henni pakkað inn og komið til Póstsins.  Við gerum okkar besta að koma henni til Póstsins sama dag ef pantað er fyrir hádegi á virkum degi, ef það næst ekki þá fer hún daginn eftir (ef það er ekki helgi eða almennur frídagur).   Ef pantað er eftir hádegi eða um helgi þá fer pöntunin í sendingu næsta virka dag. Sendingar frá höfuðborgarsvæðinu eru keyrðar út.  

Afhendingartími vöru er 3-5 dagar.  Sjáið einnig skilmála okkar hér.

Þegar pöntun hefur verið staðfest með greiðslu er gengið frá vörupöntuninni hjá okkur, henni pakkað inn og komið til Póstsins.  Við gerum okkar besta að koma henni til Póstsins sama dag ef pantað er fyrir hádegi á virkum degi, ef það næst ekki þá fer hún daginn eftir (ef það er ekki helgi eða almennur frídagur).   Ef pantað er eftir hádegi eða um helgi þá fer pöntunin í sendingu næsta virka dag.Sendingar frá höfuðborgarsvæðinu eru keyrðar út. 

Þegar greitt er fyrir pöntun / vöru með greiðslukorti í gegnum örugga greiðslusíðu Borgunar muntu fá greiðslukvittun í tölvupósti frá póstfanginu [email protected].

Jafnframt muntu fá tölvupóst frá okkur hjá Lúxúr frá tölvupóstfanginu [email protected] sem staðfestir pöntunina í okkar kerfi.  Gættu þess að skoða í ruslpóstinn (e. junk folder) ef þú sérð ekki skeytið frá okkur í innhólfinu. 

Ekki hafa neinar áhyggjur ef svo óheppilega skyldi vera að varan virkar ekki.  Þú fyllir út formið hér og við höfum samband við þig samdægurs (á virkum degi) til að bæta úr því (athugið að ef við móttökum skeytið að kvöldi til þá tryggjum við hafa samband við þig strax næsta virka dag).

Já, þú getur verið viss um að það sé 2 ára ábyrgð á úrunum frá okkur.  Sjá nánar um ábyrgð í skilmálum okkar hér.

Vefverslun Lúxúr.is er í eigu íslenska fyrirtækisins Lúxúr ehf. og leggjum við mikið upp úr öryggismálum. Við nýtum okkur m.a. nýjasta staðalinn fyrir dulkóðun í samskiptum á milli viðskiptavinar og netþjóna vefverslunar og fær vefverslun okkar A+ einkunn í öryggisprófunum (SSL) Qualys öryggisfyrirtækisins (https://ssllabs.com).

Vefverslunin Lúxúr.is keyrir einnig á netþjónum sem fylgja PCI DSS staðlinum þó svo að við tökum ekki sjálf við greiðslukortaupplýsingum.  Greiðslur fyrir vörur með greiðslukortum fara í gegnum okkar trausta samstarfsaðila Borgun sem er vottaður til að taka við greiðslum á öruggan hátt.

Þú hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að varan hafi ekki verið notuð, henni sé skilað í góðu lagi og í óuppteknum, upprunalegum umbúðum.  Sjá nánar skilmála okkur um vöruskil hér.