Skilmálar

Þessi skilmáli gildir um sölu á vörum til viðskiptavina á vefverslun Lúxúr ehf. sem er að finna á slóðinni https://luxur.is og undirsíðum.

Við staðfestingu á pöntun á vefverslun Lúxúr ehf. þarf að staðfesta skilmála þennan sem myndar þá grunninn að viðskiptum þeim sem framkvæmd eru.

Verð í vefverslun okkar er birt með fyrirvara um villur. Lúxúr ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna mistaka við verðlagningu eða ef vara reynist uppseld.  Öll verð í vefverslun Lúxúr ehf. eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Afhending vöru

Pantanir frá landsbyggðinni eru sendar sem pakki með Póstinum á næsta afgreiðslustað Póstsins, þar sem viðskiptavinir geta sótt þá.  Vörur eru keyrðar út á höfuðborgarsvæðinu. Reynt er eftir fremsta megni að afgreiða allar pantanir næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.

Pantanir eru afgreiddar eins fljótt og hægt er. Vara er ekki send fyrr en greiðsla hefur borist. Pöntunum sem dreift af Póstinum og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Póstsins um afhendingu þeirra pantana . Lúxúr ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send úr vefverslun Lúxúr ehf. og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila.  Viðskiptaskilmálar Póstsins má finna hér.

Flutningskostnaður bætist á allar pantanir og birtist um leið og innkaupakarfa er skoðuð. Fast verð fyrir flutning er á öllum pöntunum innanlands (Lúxúr ehf. sendir ekki pantanir út fyrir Ísland).

Skilafrestur

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum.  Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið.  Fresturinn byrjar að líða þegar varan hefur verið afhent flutningsaðila.  Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.  Vörum fæst skilað gegn inneign eða úttekt á öðrum vörum, en ekki er endurgreitt.

Til að nýta sér skilafrest skal kaupandi hafa samband við Lúxúr ehf. með því að fylla út formið hér til að fá leiðbeiningar um næstu skref.

Lúxúr ehf. áskilur sér rétt til að hafna ósk um skil á vöru ef ástand hennar uppfyllir ekki ofangreint.

Ábyrgð

2ja ára ábyrgð er á öllum úrum í vefverslun Lúxur ehf.  Viðgerðir innan þess tíma eru viðskiptavinum að kostnaðarlausu, samkvæmt eftirfarandi:

  • Stoppi úr án þess að það hafi orðið fyrir skemmdum, svo sem hnjaski eða raka.
  • Sé gangur úrs óeðlilegur, svo sem ef það seinkar sér eða flýtir.

Ábyrgðin nær ekki til eftirfarandi:

  • Bilana eða skemmda vegna vanrækslu og slæmrar meðferðar.
  • Bilana vegna raka og móðu, sé úrið ekki vatnsþétt (5ATM).
  • Skemmda á gleri, kassa, eða keðju/ól.
  • Rafhlaðna.

Lúxúr ehf. áskilur sér rétt til að meta og ákveða hvort boðið er upp á viðgerð, skipti fyrir samskonar úr eða inneign í stað þess hlutar sem telst gallaður.

Trúnaður

Seljandi (Lúxúr ehf.) heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Sendingar úr kerfi vefverslunar Lúxúr ehf. kunna að nota persónuupplýsingar, s.s. búsetu, aldur eða viðskiptasögu, til að útbúa viðeigandi skilaboð til meðlima eða viðskiptavina síðunnar. Þessar upplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila. Meðlimir vefverslunarinnar geta ætíð afskráð sig og þannig neitað fyrirtækinu notkun á slíkum upplýsingum.

Að öðru leiti vísum við í persónuverndarstefnu Lúxúr ehf. sem má finna hér.

Varnarþing

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur vefverslunar Lúxúr ehf. á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu einungis vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.